föstudagur, 15. febrúar 2008

virkir dagar


Dagarnir eru fullir af áreiti og hugmyndum. Stundum held ég að guð hafi ekkert að gera og sendi allar hugmyndir sínar til mín og ætlist til að ég láti þær allar verða að veruleika?
Það er mjög stressandi hugsun og ég vildi að guð hætti þessu?

þriðjudagur, 12. febrúar 2008

35 ár frá gosi í Heimaey



Eldvirkni er oftast tengd flekaskilum (úthafshryggjum) eða flekamótum (fellingafjöllum). Ísland liggur á flekaskilum þar sem Ameríku- og Evrópu-Asíuflekinn reka í sundur. Vegna þess að undir landinu er svokallaður möttulstrókur verður eldvirkni hér enn meiri en skýra má með flekaskilunum einum saman (lesa má um möttulstrók og flekaskil í svari Sigurðar Steinþórssonar við spurningunni Er eldvirkni á Íslandi sveiflukennd?)

Nútíma eldvirkni á Íslandi er einkum bundin við tvö gosbelti. Annað liggur frá Reykjanesi til Langjökuls en hitt liggur frá Vestmannaeyjum þvert yfir landið til Melrakkasléttu. Á Suðurlandi færist gosbeltið suður á bóginn vegna samspils möttulsstróksins undir landinu og flekaskilanna. Eldgosið í Surtsey sem hófst árið 1963 markar framrás Suðurlandsgosbeltisins, en í framtíðinni kann vel að gjósa enn sunnar.

Samtímis, eða stuttu fyrir Surtseyjargosið, er líklegt að kvika hafi risið inn undir Heimaey, sem er miðja eldstöðvarinnar í Vestmannaeyjum. Sennilegast er að basaltkvika, lík þeirri er kom upp í Surtsey, hafi stöðvast á um það bil 20 km dýpi og kólnað úr 1150 °C niður í 1050 °C. Við kólnunina byrjuðu þær steindir kvikunnar sem hafa hæsta bræðslumarkið að kristallast. Kristallarnir sem féllu úr kvikunni innihéldu lítið af vatni eða öðrum rokgjörnum efnum og því söfnuðust þau efni saman í afgangsbráðinni. Þegar bráð yfirmettast af þessum rokgjörnu efnum, leysast þau úr kvikunni og mynda gas. Gasið er léttara og rúmmálsfrekara en kvikubráðin og safnast því saman efst í kvikuhólfinu, þar sem þrýstingur eykst. Þegar þrýstingur kvikunnar nær að brjóta grannbergið fyrir ofan hólfið, skýst hún upp og getur valdið gosi. Undir Heimaey virðist það hafa tekið kvikuna nálægt 10 ár að byggja upp nægilegan þrýsting til að koma af stað gosinu sem hófst þann 23. janúar 1973.

Draga má þann lærdóm af síðustu Vestmannaeyjagosum, að ef gos verður einhversstaðar í nálægð Heimaeyjar þá er allt eins líklegt að gjósi einnig á Heimaey. Jafnframt má reikna með gosi hvenær sem er í Vestmannaeyjaeldstöðinni. Það sama á reyndar við um Reykjanesskagann og þá gæti Hafnarfjörður legið í því.

http://www.visindavefur.hi.is

mánudagur, 11. febrúar 2008

Hugrekki


Tribute To Courage

Courage is doing what is right
Without having to be told
Courage is manning up
When you know you've done something wrong
Courage is looking the enemy in the eye
And telling them to just bring it
Courage is having fear
But still staying strong
Courage is facing adversity
But being able to overcome it
Courage is leaving your family behind
To defend the country you love
Courage is being a soldier
In the greatest army in the world
Thank you for this courage
That lets us live free
May God bless you
And come home safely to your families

James Elston

Seinkaður fundur í Valhöll


Er að hlusta á Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson og hann er mannlegur, en vill ekki axla ábyrgð. Hann hreinlega fattar ekki stöðu sína gagnvart borgarbúum? Hvað er til ráða?